Monday, December 22, 2008

Skoðaðu alla húðina mánaðarlega

Skoðaðu húðina mánaðarlega. Það er besta leiðin til þess að greina húðkrabbamein snemma. Slík regluleg skoðun getur bjargað lífi þínu.
Þú þarft að hafa góðan veggspegil og handspegil.

BBC og ljósabekkirnir

Mikið hefur verið rætt um ljósabekki og húðkrabbamein. Breskir læknar vara eindregið við notkun ljósabekkja skv. i frétt frá BBC. Á sumum svæðum hafa ljósabekkir verið bannaðir með öllu. Nýlega birti BBC frétt þar sem tölvutækni var notuð til að sýna hvaða áhrif ljósaböð x3 í viku hafa á húðina. Sjá nánar myndina hér að neðan. Frétt BBC má lesa hér.

1

Sunday, December 21, 2008

Húðkrabbamein og fæðingarblettir

Sortuæxlum hefur fjölgað mjög mikið á Íslandi undanfarin 10 ár. Ætlunin er að fjalla sérstaklega um sortuæxli hér á vefnum. Hér má finna bækling (Acrobat form) krabbameinsfélagssins sem Ellen Mooney húðlæknir og húðmeinafræðingur hefur ritað. Hér er bæklingurinn sem venjuleg vefsíða.

Húðkrabbameinum er að fjölga

Nú greinst árlega að meðaltali um 40 sortuæxli, 40 önnur húðæxli og 160 grunnfrumuæxli í húð, samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins. Nýgengi húðkrabbameins hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum. Sortuæxli í húð er algengasta tegund krabbameins hjá konum á aldrinum frá 15 til 34 ára. Lífshorfur sjúklinga með sortuæxli hafa batnað mikið og geta langflestir þeirra sem greinast snemma vænst þess að ná fullum bata. Nú eru á lífi um 400 Íslendingar sem hafa fengið sortuæxli í húð, um 350 með önnur húðæxli og rúmlega 1600 með grunnfrumuæxli í húð. Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands heldur skrá yfir öll greind mein hérlendis. Hér má skoða nýgengi sortuæxla og annarra húðkrabbameina.

Könnun á ljósabekkjanotkun

Elín Anna Helgadóttir læknanemi kannaði ljósbekkjanotkun Íslendinga. Verkefnið var hluti af læknanámi hennar. Smelltu hér til að lesa ritgerð Elínar Önnu.

Kristín Þórisdóttir húðlæknir: Íslendingar misnota ljósabekki

Í "Vikunni" birtist nýlega mjög áhugavert viðtal um húðkrabbamein við Kristínu Þórisdóttur húðlækni. Skyldulesning fyrir alla sem vilja passa húðina. Afrit af viðtalinu má finna hér. Greinin er á pdf formi. Þú þarft að hafa Acrobat reader í tölvunni þinni til að lesa viðtalið.

Saturday, December 20, 2008

Húðlæknar álykta gegn ljósabekkjanotkun unglinga

Íslenskir húðlæknar samþykktu ályktun á aðalfundi þar sem lagt er til að unglingar yngri en 18 ára skulu hafa skriflegt leyfi foreldra áður en farið er í ljósabekki.